Þjónusta Straxverk

ÞJÓNUSTA

Við höfum mikla reynslu og sérfræðiþekkingu í fjölbreyttum verkefnum — allt frá smærri lagfæringum til stærri framkvæmda. Við leggjum áherslu á fagmennsku, vandvirkni og að viðskiptavinurinn sé alltaf ánægður með niðurstöðuna.

Smíðavinna
01

SMÍÐAVINNA

Við erum þaulreyndir í allri smíðavinnu. Hvort sem um er að ræða smærri viðgerðir eða stærri smíðaverkefni leggjum við áherslu á gæði og nákvæmni, vandvirkni í hverju verki.

  • Parketlögn, teppalögn, dúkalögn
  • Uppsetning innréttinga
  • Uppsláttur veggja og gólfs
  • Glugga- og hurðaskipti
  • Pallasmíði, útihús og girðingar
FÁÐU TILBOÐ
Málningavinna
02

MÁLNINGAVINNA

Við tökum að okkur stór og smá verkefni þegar kemur að málningarvinnu. Við bjóðum upp á málningarþjónustu bæði innan- og utandyra fyrir bæði heimili og fyrirtæki. Við tryggjum að yfirborðið sé vandlega undirbúið og notum einungis gæðaefni til að tryggja fallegan og endingargóðan árangur.

  • Innanhússmálun
  • Utanhússmálun
  • Málun heimila og íbúða
  • Málun atvinnuhúsnæðis
  • Yfirborðsmeðhöndlun og undirbúningur
FÁÐU TILBOÐ
Viðhaldsvinna
03

VIÐHALDSVINNA

Reglulegt viðhald er lykillinn að því að vernda og viðhalda verðmæti í fasteign. Hvort sem það sé kominn tími á að skipta út timburverki, þakkanti eða ditta að pallinum. Straxverk sér um alla almenna viðhaldsvinnu og smærri lagfæringar sem þarf að sinna — fljótt og örugglega.

  • Almenn viðhaldsvinna
  • Smærri lagfæringar og viðgerðir
  • Timburverksskipti
  • Þakviðhald
  • Pallviðhald og viðgerðir
FÁÐU TILBOÐ
Loftadúkar
04

LOFTADÚKAR

Loftadúkur er strektur dúkur sem er settur upp í loft og gefur rýminu fallega og hlutlausa klæðningu á sama tíma og hann bætir hljóðvist verulega. Allir þekkja áreitið sem getur skapast af slæmri hljóðvist, óþægilegu bergmáli og hávaða sem skapar streitu. Loftadúkur leysir þetta vandamál á einfaldan og vandvirkan hátt.

Við höfum mikla reynslu í uppsetningu loftadúks bæði hérlendis og erlendis, ásamt því að hafa sótt fjölda námskeiða og menntunar erlendis í faginu. Við búum yfir bæði reynslu og fagþekkingu til að tryggja vandvirkni í hverju verki. Hvort sem verkefnið er lítið eða stórt, heimilishúsnæði eða atvinnurými, tryggjum við að niðurstaðan sé óaðfinnanleg og í samræmi við óskir viðskiptavina.

  • Uppsetning í heimili og atvinnurými
  • Bætt hljóðvist og minnkað bergmál
  • Falleg og hlutlaus klæðning
  • Fagleg ráðgjöf og uppsetning
FÁÐU TILBOÐ

TILBÚIN AÐ HEFJAST HANDA?

Hafðu samband í dag og fáðu frítt verðmat.

HAFA SAMBAND